Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 190. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 765  —  190. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008, með síðari breytingum
(afnám umsóknarfrests til að sækja um leyfisbréf).

(Eftir 2. umræðu, 19. desember.)


1. gr.

    3. mgr. 23. gr. laganna orðast svo:
    Þeir sem innrituðust í fullgilt 180 eininga kennaranám, bakkalárnám, til kennslu í leik-, grunn- og framhaldsskólum á grundvelli laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra, nr. 86/1998, og luku náminu fyrir 1. júlí 2012 eða áttu við lok vormissiris 2011 30 eða færri einingum ólokið til prófs eiga rétt á útgáfu leyfisbréfs til kennslu í leikskólum, grunnskólum og/eða framhaldsskólum. Sama gildir um þá sem innrituðust í 60 eininga diplómanám til kennslu í grunn- og framhaldsskólum og luku náminu fyrir 1. júlí 2012.

2. gr.

    Lög þessi taka þegar gildi.